<$BlogRSDUrl$>

mánudagur, ágúst 27, 2007

Kveðja

Í morgun kvaddi afi Siggi í Hafnó þennan heim. Hann greindist með krabbamein í brisi i Maí og það var strax vitað að það var lítið hægt að gera. Ég og mamma sátum hjá honum i alla nott svo kvaddi eg i morgun og hann var vist farinn korteri seinna. A sama tima var eg að keyra Hringbrautina og fann friðinn koma yfir mig
Eg a eftir að sakna hans ofsalega mikið en eg er þakklat fyrir að hafa verið a Islandi þegar hann for.
Saknaðarkveðjur
Solveig

|

miðvikudagur, ágúst 15, 2007

Uppsveifla
Já nú er allt í uppsveiflu svei mér þá. Ég er flutt í nýja æðislega íbúð sem er næstum alveg eins og íbúðin sem ég var í í Lockwood House. Hverfið sem ég er flutt í hefur allt að bjóða sem maður þarf. Viðgerðakallinn kemur í fyrramálið að hjálpa mér með lásinn og hurðarhúninn. Búin að finna leigjendur í herbergið mitt meðan ég er á Íslandi svo ég þarf ekki að hafa áhyggjur af leigu. Það er að sléttast úr einkamálunum. Trúlega er ég búin að selja góða rúmið mitt sem ég á eftir að sakna þó ég sé með æðislegt rúm í nýja herberginu. Internetið kemur trúlega fljótlega á í íbúðinni og svo síðast en ekki síst þá eru bara fjórir dagar þangað til ég kem til Íslands.
Hlakka til að sjá ykkur öll,
Kossar og knús
Sóla

Efnisorð:


|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?