<$BlogRSDUrl$>

sunnudagur, mars 26, 2006






Dublin Dublin Dublin

Hæ og hó!
Ég var að koma heim frá Dublin með kórnum. Þar var rosa stuð. Við héldum tónleika í ofsalega fallegri kirkju sem á að rífa en það er verið að reyna að safna peningum til að koma í veg fyrir það. Svo var farið á djammið. Ég læt bara myndirnar tala. Þarf að læra samt betur að koma myndunum vel fyrir.
chao
Sóla

|

fimmtudagur, mars 23, 2006

Nokkrar myndir af verkum í vinnslu





|

fimmtudagur, mars 09, 2006

TRIVIA

ég hef:
(x) drukkið áfengi
(x) klesst bíl vinar/vinkonu
( ) stolið bíl
(x) verið ástfangin
(x) verið sagt upp af kærasta/kærustu
(x) faðmað einhvern ókunnugan
( ) verið rekin/n
(x) lent í slagsmálum
( ) læðst út meðan þú bjóst ennþá heima hjá foreldrunum
(x) haft tilfinningar til einhvers sem endurgalt þær ekki
( ) verið handtekin/n
( ) farið á blint stefnumót
(x) logið að vini/vinkonu
(x) skrópað í skólann
( ) horft á einhvern deyja
( ) farið til Canada
( ) farið til Mexico
(x) ferðast í flugvél
( ) kveikt í þér viljandi
(x) borðað sushi
( ) farið á sjóskíði
(x) farið á skíði (og dottið)
( ) hitt einhvern sem þú kynntist á internetinu
(x) farið á tónleika
(x) tekið verkjalyf
(x) elskar einhvern eða saknar einhvers akkurat núna
(x) legið á bakinu úti og horft á skýin
(x) búið til snjóengil
(x) haldið kaffiboð
(x) flogið flugdreka
(x) byggt sandkastala
(x) hoppað í pollum
(x) farið í "tískuleik" (dress up)
(x) rennt þér á sleða
(x) grátið svo mikið að þér finnst þú aldrei ætla að hætta
(x) svindlað í leik
(x) verið einmana
(x) sofnað í vinnunni/skólanum
(x) notað falsað skilríki
(x) fundið jarðskjálfta
(x) sofið undir berum himni
(x) verið kitluð/kitlaður
(x) verið rænd/rændur
(x) verið misskilin/n
(x) klappað hreindýri/geit/kengúru
(x) farið yfir á rauðu ljósi/virt stöðvunaskyldu að vettugi
( ) verið rekin/n eða vísað úr skóla
(x) lent í bílslysi(engu alvarlegu samt)
(x) verið með spangir/góm
(x) liðið eins og þú passaðir ekki inn í/þriðja hjól undir vagni
(x) borðað líter af ís á einu kvöldi
(x) fengið deja vu
(x) dansað í tunglskininu
(x) fundist þú líta vel út
( ) verið vitni að glæp
(x) efast um að hjartað segði þér rétt til
( ) verið gagntekin/n af post-it miðum
(x) leikið þér berfætt/ur í drullunni
(x) verið týnd/ur
( ) fundist þú vera að deyja
(x) grátið þig í svefn
(x) farið í löggu og bófa leik
( ) litað nýlega með vaxlitum
(x) sungið í karaókí
(x) borgað fyrir máltíð eingöngu með smápeningum
(x) gert eitthvað sem þú lofaðir sjálfri/sjálfum þér að gera ekki
(x) hringt símahrekk
(x) hlegið þannig að gosið frussaðist út um nefið á þér
(x) stungið út tungunni til að ná snjókorni
(x) dansað í rigningunni
(x) skrifað bréf til jólasveinsins
( ) verið kysst/ur undir mistilteini
( ) horft á sólarupprásina með einhverjum sem þér þykir vænt um
(x) blásið sápukúlur
(x) kveikt bál á ströndinni
(x) komið óboðin/n í partý..
( ) verið beðin/n um að yfirgefa partýið sem þú komst óboðin/n í
(x) farið á rúlluskauta/línuskauta
(x) hefur einhver óska þinna ræst
( ) farið í fallhlífastökk
( ) hefur einhver haldið óvænt boð fyrir þig

|

föstudagur, mars 03, 2006

Fræg og vinsæl...

Halló allir saman. Jább ég frétti það í gær að ég er barasta fræg. Mynd af mér í mogganum og allt. Hafði reyndar ekki hugmynd um þetta. Ég fór nebblega á þorrablót Íslendingafélagsins í London og þurfti auðvitað að troða mér upp á sviðið eins og vanalega og greinilega hefur einhver tekið mynd og sett í Moggann. Söng nokkur lög með kórnum og seldi happadrættismiða og svoleiðis. Svo var náttlega tjúttað við milljónamæringana og Palla. Rosa stuð dansaði næstum af mér fæturnar.
Já svo er ég líka rosa vinsæl þessadagana. Ég þurfti að neita fólki um gistingu heima hjá mér því það er fullt þessa helgi. Binna og Úlfar koma á laugardaginn. Professional Beauty syningin er um helgina og þau ætla að fara og ég og Freyja líka. Ég laug upp snyrtistofu og að Freyja væri starfsmaður hjá mér til að fá fría miða á sýninguna. Nýja snyrtistofan mín heitir semsagt Sóla Beauty ;)
Lísa María og Díana fara líka á sýninguna og vildu endilega gista líka en það er bara ekki pláss fyrir sex fullorðna hérna + að það er bara hægt að fá heitt vatn í tvær sturtur á morgnana. En þær eru komnar til London og ég er á leiðinni út að hitta þær.
Ég held líka að ég sé komin með endanlega staðfestingu á að ég er undir einhverjum álögum. Fyrir tveimur vikum hitti ég strák sem heitir Brant. Ég er rosa spennt fyrir honum og við erum að deita núna, EEEEENNNN á miðvikudaginn var honum boðið starf úti í Amsterdam. Hann er ekki búinn að svara en hann þarf að vita það eftir helgi. Þetta er svo ótrúlega týpiskt fyrir mig alltaf ef ég finn einhvern skemmtilegann strák sem ég er spennt fyrir þá býr hann annaðhvort í útlöndum eða er að flytja þangað. Þannig að ég verð ábyggilega piparjónka á endanum því þeir flýja allir land hihihihi... ...ágætt að geta hlegið að sjálfum sér.

jæja nóg bull í bili bið að heilsa ykkur öllum
bæjó Sóla

|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?