<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, apríl 27, 2005

Svolítið seint en samt blogg...

Hæ hæ öll
já ég er risin úr löngum dvala. Það er eins og ég hafi vaknað í dag. Var búin að gleyma því hvað það var gott að koma í Hveró og fá sér smá röllt um bæinn og stússast smá. Grasið orðið grænt nálægt hverasvæðinu og alstaðar blóm og hlýtt og gott að röllta bara um í rólegheitunum og leyfa huganum að reyka um. Reyndar urðu blómin og grasið til þess að minna mig rækilega á að fara í apótekið að kaupa mér ofnæmislyf en það var hvort eð er kominn tími til. Í þessum algleymingi fór ég í bankann og borgaði skráningargjöldin í skólann minn. Og stússaðist ýmislegt í þeim málum sendi meðal annars staðfestingu á því að ég ætlaði að mæta í skólann 3. október næstkomandi. Orðin soldið spennt... ;b

Var búin að gleyma hvað foo fighters eru með sexy tónlist

kveðja Sóla

|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?