<$BlogRSDUrl$>

miðvikudagur, október 13, 2004

lestrarhestur

Já það er langt síðan ég bloggaði síðast. Fannst vera kominn tími til þess núna. Ég er nefnilega búin að vera að læra alltaf þegar ég er í tölvunni og þegar maður er búin að læra í heilt kvöld nennir maður ekki að fara að blogga eða eitthvað svoleiðis. Er nýkomin með símanúmer heima: 561-0116 mjög cool númer. og þar af leiðandi nýkomin með internetið heim til mín. nú þarf ég ekki að fara annað til að læra heima.
Talandi um síma þá fór ég á djammið á laugardaginn og þá var símanum mínum stolið svo að þetta símanúmer sem ég skrifaði áðan er eina númerið sem þið náið í mig. Er að láta rekja síman en það er ekki alltaf sem þeir finnast. Ég ætla að þrauka í smá tíma og ef hann finnst ekki þá kaupi ég mér bara nýjan síma. Búin að vera ótrúlega dugleg í dag. Fór og ætlaði að sækja um húsaleigubætur en það var ekki hægt því Fanney verður að skrifa undir umsóknina líka svo hún verður að gera það í fyrramálið því ég er í hveragerði núna. Annars er ég búin að vera ógeðslega dugleg að læra og læra og læra í dag. Er bara orðin smá þreitt á því en ég verð að læra smá meira.

Mamma hringdi í dag í hádeginu til Köben að pannta hótel fyrir ferðina sem við förum í í byrjun desember og þar af leiðandi er ég orðin ógeðslega spennt.

bið að heilsa öllum
Sóla

|

This page is powered by Blogger. Isn't yours?